Hver eða hvað stjórnar Moggablogginu?

Ég hef stundum velt fyrir mér hver það er sem stjórnar Moggablogginu. Já, eða hvað? Hér á ég við hvað ræður því hvaða Moggabloggari birtist á forstíðu Moggabloggsins (blog.is). Ég tók mig til og gerði tölfræðiathugun á nokkrum helstu bloggurum og hér kemur niðurstaðan sem kemur nokkuð á óvart. Eftir þessa niðurstöðu er ljóst að ekki er þetta jafn leikur sem Moggabloggið býður upp á sem fær mann til að verða afhuga þessum vettvangi.

Sigurður Þór Guðjónsson virðist vera í miklu uppáhaldi því hann kom upp í alls 42% tilvika! Næstur kom Baldur Kristjánsson sem birtist í 38% tilvika þegar forsíða bloggsins kemur upp. Í 3-4. sæti komu Páll Vilhjálmsson og Einar Sveinbjörnsson í 33% tilvika. Fimmti var Jens Guð með 29% tilvika.

Sjálfstæðismenn virðast ekki eiga upp á pallborðið á þessum vettvangi. Þannig kom Hannes Hólmsteinn ekki upp nema í 13% tilvika, Björn Bjarnason og Stefán Friðrik í 17%. Dögg Pálsdóttir kom að vísu upp í fjórðungi skipta á meðan Ástþór Magnússon naut náðar í 21% allra þeirra tilvika á því tímabili sem könnunin var gerð. Lára Hanna Einarsdóttir ofurbloggari sást aðeins í 8% tilvika meðan Ómar Ragnarsson kom upp í 1 skipti af hverjum 4. Sá sem þetta skrifar var í sama flokki og Lára Hanna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Já, hérna! Nú er ég þó hissa.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.11.2009 kl. 23:00

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Ef að Moggabloggið væri "kasínó" þar sem tilviljanakenndar líkur réðu því hve oft "þrír eins" eða "fullt hús" kæmu upp í póker, myndi ég aldrei gambla þar.  Þeir stjórna nebblega líkum, vinsældum, og heitum umræðum allt eftir geðslagi og skapi hverju sinni. 

Þú mátt þó vel við una Jón Baldur sæll, því þú ert oftast í stúkunni. 

Jenný Stefanía Jensdóttir, 7.11.2009 kl. 23:33

3 identicon

Er ekki einmitt nauðsynlegt í dag - í ljósi þess hve eignarhald fjölmiðla, m.a. dagblaða er einkennilegt - að bloggarar séu án allrar stýringar að "ofan"

Þetta sem þú nefnir er áhugavert; en á gáttinni.is eru menn jú jafnir, er það ekki ? Og blómleg er flóran og fer vaxandi.

Það þarf ekki tölfræðiúrvinnnslu til að átta sig á alveg stórundarlegum kröfum sem gerðar eru til þeirra sem blogga á Morgunblaðsblogginu; nefninlega að þeir verða að blogga fréttatengt efni. Annars eiga lesendur samviskusamlega að hringja inn

Samanber:   "Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt". 

En ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá tel ég að morgunblaðsblogginu eigi eftir að hraka enn frekar.  Og þá á ég til lengri tíma litið. Það sem er að ske er að það eru allskyns skorður i gangi (þú nefnir eina) og ekki fer það batnandi, eða hvað ?

Hákon Jóhannesson 7.11.2009 kl. 23:35

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég hef oft undrast listann þar sem mest lesnu fréttirnar eru, svo er annað sem ég hef undrast þegar áhugaverð málefni (fréttir tengdar áhugaverðum málefnum) birtast og hverfa með undarlegum hætti af forsíðunni og sjást aldrei aftur. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.11.2009 kl. 02:01

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já þetta er góð spurning. Kannski verður þetta upplýst?

Sigurður Þórðarson, 8.11.2009 kl. 02:09

6 Smámynd: Skákfélagið Goðinn

Sæl Öll.. Ég sá einhversstaðar þar sem þessari spurningu var svarað. Mbl velur c.a. 400 "bestu" bloggarana sem birtast á forsíðu mbl til skiptis. Bestu bloggararnir er flokkaðir þannig: Mest lesið, vandað málfar og eitthvað fleira sem ég man ekki lengur.

Ég var mjög upp með mér því mín síða poppar þarna reglulega upp, þó svo ég tengi aldrei við fréttir á blogginu mínu og hún sé einungis með c.a. 100 flettingnar á dag. 

Skákfélagið Goðinn, 8.11.2009 kl. 11:05

7 identicon

Samt hefur fólk haldið því fram hér í Moggablogginu að Sjálfstæðismenn séu í náðinni í þessu bloggi og hinir komist ekki að og sem er augljóslega upplogið.  

ElleE 9.11.2009 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband