Forsetinn hefði átt að gera kröfu um þjóðstjórn

Þessar tölur um atvinnuleysi eru alvarlegri en orð fá lýst. Atvinnuleysi er einn mesti bölvaldur hverrar þjóðar og viðvarandi atvinnuleysi er óásættanlegt. Ný ríkisstjórn verður að bregðast við með skjótum og fumlausum hætti ef ekki á illa að fara. Það er mjög góður fyrirlestur Jóhanns Inga Gunnarssonar, sálfræðings um kreppu, sem hægt er að sjá á vef Háskóla Íslands einmitt um skaðvaldinn atvinnuleysi fyrir sálarlíf þeirra sem lenda í þessu áfalli í lífinu.

Það var ábyrgðarleysi af fyrri ríkisstjórn að skipa ekki strax þjóðstjórn í október þegar fjármálakreppan skall á landsmönnum. Það var hárrétt hjá Geir H. Haarde að stjórnmálakreppa ofan á fjármálakreppu er slæmur kokteill. Stjórnmálaflokkarnir höfðu síðan annað tækifæri til að skipa þjóðstjórn þegar ríkisstjórn Geirs sprakk en stjórnmálaleiðtogarnir féllu á prófinu. Og þá var tækifæri fyrir hr. Ólaf Ragnar Grímsson, forseta, að grípa í taumana og skipa stjórnmálamönnum að snúa bökum saman og vinna sem einn hugur að því að koma þjóðinni út úr þeim grafalvarlega vanda sem þeir og fjárglæframennirnir áttu stóran þátt í að skapa. Allavega voru engar varnir reistar heldur fengum við brotsjóinn á okkur á stjórnborða meðan veislan var í algleymingi í brúnni.  

Það er alla vega eitthvað mikið að þegar forsetinn og forystumenn væntanlegrar ríkisstjórnar telja það nú helsta bjargráðið fyrir hina 18.000 atvinnulausa og stórskulduga þjóð að reka einn mann úr Seðlabankanum.


mbl.is 18.000 á atvinnuleysisskránni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband