,,Besta fjárfestingin eitt stykki forseti"

 

Það er aldrei mikilvægara en nú að fjölmiðlar geri skyldu sína. Þeir þurfa að standi lýðræðisvaktina sem fjórða valdið. Síðasta vörnin fyrir lýðræðið og lýðveldið. Forsetakosningar 2012 eru prófsteinn á heilbrigði og heiðarleika íslenskra fjölmiðla. Fyrsta krafan hlýtur að vera að fá skýr svör frá öllum þeim sem ætla sér að fá lyklavöldin á Bessastöðum um hverjir það eru sem fjármagni kosningabaráttu þeirra. Opið bókhald er svarið. Og enginn frambjóðandi á að sleppa fyrir horn með kjaftavaðli. Opið bókhald um öll framlög einstaklinga og lögaðila upp á borðið, takk fyrir. Við eru illa brennd af vinnubrögðunum fyrir hrun þar sem opin prófkjör voru sem uppboðsmarkaður fyrir óheiðarlega pólitíkusa sem vildi fallbjóða sig hæstbjóðanda. Í viðskiptaheiminum montuðu menn sig af bestu fjárfestingunni í eignasafninu; alþingismannatali. ,,Besta fjárfestingin mín er eitt stykki þingmaður", sagði einn borubrattur forstjóri við fjárfesti í lúxussnekkjunni. Og nú þegar forseti Íslands hefur virkjað málsskotsréttinn þá gæti besta fjárfestingin í dag verið forseti Íslands. 


mbl.is Þingmaður vill opið bókhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Einmitt: EITT STYKKI FORSETI, BESTA FJÁRFESTINGIN....Kjósendur þurfa að skoða fjármögnun forsetaframboðanna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.6.2012 kl. 14:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband