Lýðræðisríki geta orðið einræðisríki að nýju

 

Ólgan í ríkjum Evrópusambandsins og öðrum ríkjum stigmagnast ár hvert. Fjárfestar og fjármagnseigendur þurfa meira fjármagn til að lifa af kreppuna. Það fæst með hærri vöxtum á lánsfé. Það fæst með meiri veðum í eignum fólks, fyrirtækja og ríkja. Svo langt er gengið að velferðarkerfi ríkja eru veðsett til að greiða lánadrottnum. Fjárfestar krefjast einkavæðingu gróðans og þjóðnýtingu tapsins. Skattgreiðendur skulu blæða fyrir misheppnaðar áhættufjárfestingar fjárglæframanna í alþjóðlega fjármálakerfinu. Og nú er svo komið að forsvarsmenn ,,valdsins" hvetja til þess að ,,feikilegu valdi" verði beitt til að sigrast á skuldavanda Evrópu. Við höfum séð það í Grikklandi og í smærri mynd í öðrum ríkjum Evrópu. Spánn er á sömu leið og Grikkland. Portúgal kemur svo á eftir. Öll þess þrjú ríki voru aðeins fyrir nokkrum áratugum einræðisríki þar sem herinn tryggði með ,,feikilegu valdi" ráðandi einræðisöfl. ,,Einræðisherrar" Evrópu í dag eru fjármagnseigendur. Það er ömurlegt til þess að hugsa að herjum lýðræðisríkja verði beitt gegn eigin þegnum. En það kann að vera að ekki sé langt að bíða þess. Ef Grikkland fellur þá er tengingunum kastað.


mbl.is Gæti þurft „feikilegt vald“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, þessi umbreyting (fyrirsögn) getur átt sér stað í Egyptalandi og í Grikklandi, jafnvel á Spáni og í Portúgal, ef allt fer þar í kássu í efnahagsmálunum.

Ábyrgðarleysi eins og það, sem viðhaft var við stofnun evrusvæðisins, getur sannarlega og hefur þegar komið í bakið á ýmsum evruþjóðum.

Jón Valur Jensson, 18.6.2012 kl. 00:22

2 identicon

"Geym Drottinn okkar dýra land, er duna jarðar stríð..."

Hver á sér fegra föðurland? 18.6.2012 kl. 09:23

3 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Sammála þér, sagan sýnir auðvitað að lýðræðisríki geta orðið að einræðisríkjum.

Í allri umræðunni um yfirstandandi kreppu í Evrópu og víðar er einn rauður þráður sem er ábyrðarleysi þeirra sem höndla með fjármagn. Sér í lagi bankarnir en mörg ríkisstjórnin einnig. Sú lausn sem nýtur vaxandi fylgis innan ESB er að skapa enn stærri og voldugri fjármagnskerfi til hliðar við lýðræðið.

Brynjólfur Þorvarðsson, 18.6.2012 kl. 13:42

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það má spyrja sig hvar er lýðræðið á Íslandi á þessum síðustu tímum þegar landsmenn eru leyndir því sem skiptir máli í viðræðum við ESB? þegar reynt er að smygla mikilsverðum ákvarðanatökum gegnum þingið án þess að þingmenn fái að sjá plögginn?  Þegar mikilsverðum upplýsingum er stungið undir stól? Eða þegar forsætisráðherra segir blákalt að lögum skuli þvingað í gegn hvað sem hver segir?  Í mínum huga er það ekki lýðræði.  Hvað aftur á móti á að kalla svona stjórnarfar vefst fyrir mér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2012 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband