Fallöxin tekin upp í fjölmiðlum

 

Því lengri tíma sem það tekur að gera upp við hrunið, því eldfimara ástand skapast í þjóðfélaginu. Sérstakur saksóknari er enn að störfum bakvið luktar dyr með herskara saksóknara. Ég óttaðist fyrir þremur árum, eða svo, að einu aðilarnir sem fengu refsingu yrðu smákrimmar, ,,snærisþjófarnir". Hinir stórtæku myndu sleppa enda hefðu þeir dansað í kringum lögin eins og púkar í kringum sannleikann. Og það sem næðist að dæma þá fyrir væri fyrnt og tröllum gefið. Þetta þýðir að andrúmsloftið í þjóðfélaginu fer að verða eins og á dögum frönsku byltingarinnar. Múgurinn ræðst á alla sem virðast grunsamlegir, eða spunadoktorar í stjórnmálum og í viðskiptum er uppsigað við. Þá er múgnum sigað á ,,óvininn" og þeir settir í fallöxina, þ.e. fjölmiðla valdhafa sem eiga að stýra almenningsálitinu. Á meðan fá hinir sönnu hrunverjar frið til að baða sig áfram í þýfinu. 

Þannig er nú ráðist af mikilli heift á Ögmund Jónasson, innanríkisráðherra, eins og þar væri helsti hrunverjinn fundinn. Ekkert er meira fjarri sanni, eins og almenningur og fjölmiðlar ættu að vita, sem ráðast nú að ráðherranum eins og varðhundar valdsins að skipun að ofan. RÚV virðist vera sérlega uppsigað við Ögmund, enda lætur hann illa að stjórn valdhafa, eins og dæmin hafa sýnt. Það hefur örugglega hlakkað í sumum pólitískum samherjum hans við að horfa á ,,réttarhöldin" yfir Ögmundi í beinni. Hann var fundinn sekur áður en hann settist í settið hjá Helga Seljan. En mér var misboðið og vonandi var svo um fleiri.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helgi Seljan sýndi það betur en nokkru sinni í viðtalinu við Ögmund í Kastljósþættinum að hann er gjörsamlega óhæfur spyrjandi í þessum þáttum. Hann hafði enga þolinmæði til að hlusta á skýr svör og greinargóðar röksemdir Ögmundar, heldur gekk öll hans viðleitni út á að traðka æru Ögmundar í svaðið, gera hann að hvítflibbaglæponi, einn af ábyrgðarmönnum hrunsins. Eins og við var að búast hafði Ögmundur í fullu tré við kauða og sneri á köflum vörn í sókn. Hann kom sterkur út úr þessum þætti, en Helgi sem oft fyrr, sem fýldur leiðindagaur.

Guðbrandur Brynjúlfsson 8.2.2012 kl. 07:06

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það getur enginn agnúast yfir árásum á Ögmund, hann gaf sjálfur færi á sér.

Með framgöngu sinni í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Landssambands lífeyrissjóða gaf Ögmundu tóninn. Í stað þess að þegja, eða biðjast afsökunar á hugsanlegum mistökum, tók Ögmundur til við að verja sjálfan sig og kenna "kapítalismanum" um það sem miður fór. Staðreyndin er að ekkert í skýrslunni segir að Ögmundur hafi farið rangt að, reyndar ekki heldur rétt.

Hins vegar var bent á þá staðreynd, í fréttaskýringu við útkomu skýrslunnar, að Ögmundur hafi verið í forsvari LSR fram til ársins 2007, staðreynd sem verður ekki hrakin. Þetta tók Ögmundur stinnt upp og því er þessi umræða komin á það svið sem hún er, langt útfyrir efnið.

Svar Ögmundar í Kastljósi í gær og reyndar í fjölmiðlum áður, um að hann ætli ekki að taka á sig sök "kapítalismans" er frekar út í hött. Það ætlast enginn til þess og reyndar dettur held ég engum manni slík vitleysa í hug. En ef eitthvað var gert í starfi LSR á þeim tíma er hann var yfir þeim sjóð, sem orkar tvímælis, ber hann vissulega ábyrgð á því, hvort sem hann var beinn gerandi eða ekki.

En umræðan hefur ekki verið um það, heldur etthvað allt annað. Og þessi umræða hefur einkum skapast vegna viðbragða Ögmundar sjálfs, við útkomu skýrslunnar.

Hitt er annað mál að það má vissulega gagnrýna Helga Seljan í þessari umfjöllun. Skýrslan er stór og veigamikil og í henni er tekið á mörgum þáttum. Hef reyndar ekki enn lokið yfirferð yfir hana að fullu. Þó er ljóst að Helgi reynir að persónugera niðurstöðu skýrslunnar, í stað þess að greina niðurstöðuna út frá því sem miður fór og hvað skuli bæta.

Með því að persónugera niðurstöðu skýrslunnar mun umræðan aldrei verða annað en skítkast milli manna, enginn bót mun verða.

Það er þó eitt sem má persónugera í þessu sambandi og það er hverjir eru enn í stjórnum lífeyrissjóðunum og voru þar fyrir hrun. Þær persónur eiga að segja af sér og ekket sem bannar að halda nöfnum þeirra á lofti. Að öðru leyti á umræðan að vera um hvað fór úrskeiðis og hvað ber að bæta.

Hafi einhverjir einstaklingar gerst brotlegir við lög, er það þartilbærra yfirvalda að taka á því. Dómstóll götunnar á ekki að dæma þar og alls ekki fjölmiðlar.

Gunnar Heiðarsson, 8.2.2012 kl. 08:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband